29.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1423 í B-deild Alþingistíðinda. (1799)

127. mál, sala á Sigurðarstöðum

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Þótt þeir séu miklir lögfræðingar háttv. 1. Rvk. (J. Þ.) og þm. N.-Þing. (B. Sv.), legg eg þá ekki að jöfnu að lagaþekkingu og háttv. 1. þm. Eyf.

(H. H.) og þm. Vestm. (J. M.). Það er augljóst, að stjórnarráðið hefir ekki heimild til að selja öðrum en ábúanda jörðina.