29.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1423 í B-deild Alþingistíðinda. (1800)
127. mál, sala á Sigurðarstöðum
Framsögum. (Benedikt Sveinsson):
Eg skal ekki eyða mikið fleiri orðum að þessu frv. Mér finst lítið nýtt hafa komið fram í málinu, þó að svo margir lögfræðingar og stjórnvitringar hafi talað á móti því. Eg sé ekki annað en skýr lagaboð liggi fyrir og eg kýs heldur að fara eftir þeim en hártogunum lögfræðinga, sem ef til vill hefir ekki verið skýrt rétt frá málinu. Ef sýslunefnd álítur eina jörð vel fallna til þess að verða skólajörð, þá er alveg heimildarlaust að selja hana ábúanda.
Þar sem einn háttv. þm. sagði, að hreppurinn hefði engan hag af því að kaupa jörðina, þá vísa eg þeirri fullyrðingu á bug sem markleysu, og verð að álíta, að hreppurinn viti það betur sjálfur, hvað honum er fyrir beztu, heldur en hinn háttv. þingmaður. Eg veit ekki til, að hann sé neinn fjárráðamaður né forráðamaður fyrir gjaldendur í Presthólahreppi. Býst eg því við, að háttv. deild meti meir rökstudda beiðni frá hreppsbúum, heldur en hjal ókunnugra manna, sem aldrei hafa stigið fæti sínum í héraðið.
Að öðru leyti skal eg nú ekki fara fleirum orðum um málið.