29.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1424 í B-deild Alþingistíðinda. (1801)
127. mál, sala á Sigurðarstöðum
Jón Magnússon:
Eg ætlaði bara að leiðrétta það, sem virðist standa öfugt í þeim háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) og háttv. þm. N.-Þing. (B. Sv.). Lögin um forkaupsrétt leiguliða eru almenn lög, en lögin um sölu kirkjujarða eru að eins heimild, sem stjórninni er veitt í vissum kringumstæðum. Og lögin um forkaupsrétt leiguliða segja það skýrt, að jörðin, sem á að selja, skuli altaf fyrst boðin leiguliða til kaups. Þetta er svo skýrt ákvæði, að mig furðar á því, að háttv. þingm. skuli ekki geta skilið það. Að öðru leyti hygg eg, að málið sé orðið fullrætt og skal ekki eyða frekari orðum að því.