13.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 417 í B-deild Alþingistíðinda. (184)

10. mál, rannsókn bankamálsins

Lárus H. Bjarnason:

Háttvirtur forseti hefir fengið þetta ráð, að taka af mér orðið, hjá ráðherra. Uppkastið til síðustu orða hans, í minn garð, lét ráðherra B. J. leggja á forsetaborðið í dag. Að því get eg leitt vitni. Og dygði það ekki, var honum skipað að fresta fundi.