27.02.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1468 í B-deild Alþingistíðinda. (1845)

22. mál, æðsta umboðsstjórn Íslands

Jón Þorkelsson:

Eg er samdóma háttv. 2. þm. S.Múl. (J. Ól.) að þetta sé mjög einfalt mál. Og eg álít það svo einfalt, að ekki sé nein ástæða til þess að skipa nefnd í það. Þær breytingar, sem þarf að gera á frumv., má alveg eins gera með breytingartillögu. Og að vísa því til nefndar, væri ekki annað en svæfa það. Legg því til, að málinu sé vísað til 2. umr.