02.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1471 í B-deild Alþingistíðinda. (1852)

22. mál, æðsta umboðsstjórn Íslands

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Eg veit ekki, hvort það er nokkur »dragsúgur« í deildinni í dag, eða ráðherrahitasótt, svo að háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) skilji ekki mælt mál. Það sem hv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) ber mér á brýn, að eg hafi sagt, hefi eg aldrei sagt. (Jón Þorkelsson: Hefir margsagt það). Hann hefir eitthvað blandað hér saman málum.