13.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 417 í B-deild Alþingistíðinda. (186)

10. mál, rannsókn bankamálsins

Sigurður Stefánsson:

Eg stend að eins upp til að geta þess, að eg ásamt 3 öðrum háttv. þingdeildarmönnum bar upp og afhenti háttv. forseta tillögu um að fresta fundi til morguns í því skyni, að hún yrði borin undir atkvæði þegar í stað, en við ætluðumst ekki til þess, að umræður yrðu um hana.