06.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1537 í B-deild Alþingistíðinda. (1910)
18. mál, sóknargjöld
Framsögum. (Eggert Pálsson):
Mér fanst að háttv. 2. þm. Árn. (S. S.) hefði mátt taka tilmæli mín til greina, að tala ekki um málið á þessu stigi þess. En viðvíkjandi því ágreiningsatriði, er þm. hefir gert í nefndinni, þá er það með öllu óhugsandi, að deildin fallist á það, þar sem hún nýverið er búin að samþykkja ákvæði, er ganga í öfuga átt við það í stjórnarskrárfrumv. því, sem nú hefir legið fyrir. Annars held eg við það, sem eg hefi áður sagt, að eg mun geyma mér frekari umræður um málið til 2. umr., nema eg verði knúður af einhverjum öðrum hv. þingdeildarm. til þess að standa upp að nýju.