06.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1732 í B-deild Alþingistíðinda. (2075)
133. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands
Framsögum. (Pétur Jónsson):
Það má lengi bíða þess, að háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) átti sig á þessu máli, og yfir höfuð verður ekki ætlast til þess, að þingmenn geti allir sett sig inn í hvert mál. Og ef það veltur svo mikið á því um þetta mál, hvort að til þess liggja drengilegar hvatir af hálfu okkar flutnm., þá veit eg, að það er sérstaklega örðugt fyrir 1. þm. Rvk. (J. Þ.) að átta sig á slíku. Hann verður því engu nær, þótt lengri tími líði til undirbúnings. Eg veit það með vissu, þrátt fyrir ummæli hv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.), að fáir þingmenn munu væna mig lélegra hvata eða bregða mér um hlutdrægni í þessu máli. Mér þykir bara leitt, hvernig málinu er komið. Í nefndinni var alt friðsamlegt. Það er loftskeytamisklíðin, sem leitt hefir asnann í herbúðirnar og sett ilt blóð í málið hér.
Mér þykir leitt, ef háttv. þm. N.-Þing (B. Sv.) teymist til þess að spilla þessu máli, því að þótt eg hafi eigi flutt þetta mál vegna Norður-Þingeyinga heldur landsins í heild, þá varðar enga jafn mikils og þá, að það gangi fram óbrjálað.