06.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1910 í B-deild Alþingistíðinda. (2300)
35. mál, bændaskóli á Eiðum
Flutnm. (Jón Jónsson N.-Múl.):
Eg sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta mál, vil að eins leggja til, að nefnd verði kosin til að íhuga það; vænti eg að hin háttv. deild telji málið svo þýðingarmikið, að það sé þess vert. Hér er um stórmál að ræða fyrir heilan landsfjórðung. Eigendur skólans hafa gert tilboð um að selja hann, ekki vegna þess, að þeir vilji losna við eignina, heldur vegna hins, að þeir vilja að hann verði landinu til gagns. Eg vil leyfa mér að stinga upp á, að skipuð verði 5 manna nefnd í málið.