22.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1924 í B-deild Alþingistíðinda. (2317)
132. mál, stofnun húsmæðraskóla
Framsögum. (Pétur Jónsson):
Eg hélt ekki að eg þyrfti nú að taka til máls í máli þessu, því að það hefir fengið svo góðan byr. En nú er komin fram breytingartillaga á þgskj. 702 frá háttv. 2. þm. Húnv. (B. S.) við frv. sem fer fram á að breyta 8. gr. þess þannig, að landssjóður geti ekki rekið bú á skólajörðinni. Eins og eg tók fram við 2. umr. málsins, heimilar 8. gr. ekki að landssjóður reki bú á jörðinni, nema því að eins að ekki fáist neinn nýtur leiguliði, sem rekur búskapinn á eigin ábyrgð. Þetta er því eins og stendur í lögunum um bændaskóla, því þar er sagt, að búskapur skuli ekki rekinn á landssjóðs ábyrgð, nema að nauðsyn krefji. En þó að þessi breytingartillaga verði samþykt, gerir það í raun og veru engan mun, því ef stjórnin getur ekki fengið nýtan mann til þess að reka búskap á jörðinni, verður að reka hann á kostnað landssjóðs. Slíkt er óhjákvæmilegt. Það er því réttara að halda 8. gr. frv. óbreyttri, því að frv. væri þá skýrara.
H. 2. þm. N.-Múl. (Jóh. Jóh.) hefir komið fram með breytingartillögu á þgskj. 681, sem fer fram á að breyta kosningu í skólanefndina þannig, að sýslunefndir Norður- og Suður-Múlasýslna kjósi hvor um sig 1 mann í stjórnina, í staðinn fyrir að kjósa 1 mann báðar, eins og frv. fer fram á. Þetta er gert til þess að spara kostnað við sameiginleg fundarhöld sýslunefndanna. Get eg felt mig við þessa breytingartillögu. Vænti eg svo, að frv. nái fram að ganga, hvort sem breytingartillögurnar verða samþyktar eða ekki.