23.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2015 í B-deild Alþingistíðinda. (2438)

4. mál, styrkveiting úr landssjóði til búnaðarfélaga

Bjarni Jónsson:

Að eins örstutt fyrirspurn til háttv. 2. þm. Árn. (S. S.). Í þingsáltill. stendur í 2. lið:

»Jarðabætur eru lagðar í dagsverk þannig: a. Túnasléttur 50 fermetra«. Á nú 50 að teljast nafnorð og stýra eignarfalli í fleirtölu, það er fermetra, eða er fermetra nefnifall í fleirtölu?