28.02.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2027 í B-deild Alþingistíðinda. (2471)

19. mál, Landsbankarannsókn

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Það er undarlegt skilningsleysi, sem hér kemur fram. Hér blandar 1. þm. Rvk. (J. Þ.) saman almennum nefndum og nefnd, sem skipuð er samkvæmt 22. gr. stjórnarskrárinnar. (Jón Þorkelsson: Er nokkuð á móti því, að báðar nefndirnar rannsaki sama mál?). Nefndirnar geta tafið hvor aðra, og það er þó varla tilgangurinn.