09.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2059 í B-deild Alþingistíðinda. (2507)

53. mál, rannsókn símaleiða

Hannes Hafstein:

Eg hefi ekkert á móti því, að tillagan sé samþykt, fyrst það er ekki meiningin að heimta undir öllum kringumstæðum nýja rannsókn, heldur að eins að fara fram á rannsókn á því, sem óathugað kynni að vera á símaleið þessari, en þó nauðsynlegt að rannsaka, til þess að nægileg áætlun gæti orðið gerð.