08.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2059 í B-deild Alþingistíðinda. (2509)
54. mál, strandgæsla
Flutningsm. (Skúli Thoroddsen):
Það er sama að segja um þessa tillögu og hina fyrri, að hún er borin hér fram eftir ósk kjósenda minna á þingmálafundi. Það hefir verið kvartað yfir því, að á tímabilinu frá 1. sept. 1. marz héldu botnvörpungar sig mjög fyrir utan Vestfirði, færu inn á fjörðuna og gerðu þar mikinn usla. Varðskipið sést nær aldrei á þeim stöðvum og því er hér farið fram á, að stjórnin hlutist til um það. Nægilegt mundi vera, að ráðherra beindi þessari ósk til yfirmannsins á Valnum og má þá ganga að því vísu, að hann verði við henni.
Ef betur þætti á því fara, mætti og verja einhverju fé á fjárlögunum til þess að halda úti vélarbát, sem næði númerum á sekum botnvörpungum.