10.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2065 í B-deild Alþingistíðinda. (2520)
55. mál, bréfhirðing og aukapóstar
Flutnm. (Skúli Thoroddsen):
Eg þarf eiginlega ekki að svara því, sem hv. þm. S.-Þing. (P. J.) sagði, en eg skal þó benda á það, að það er ekki nýtt, að annað eins og þetta sé samþ. hér á þingi. Eg hygg meira að segja, að ekki hafi verið haldið það þing nú í seinni tíð, að ekki hafi verið samþykt eitthvað svipað þessu.
Eg skal játa það, að þess er engin von, að hver einstakur þingmaður sé persónulega kunnugur, hvar sem er á landinu, en það verður ekki fremur heimtað í þessu tilfelli en þegar um einhvern vegarspotta er að ræða, sem hér er samþykt að leggja. Hér er ekki á öðru að byggja, en óskum héraðsbúa sjálfra, sem líka liggja frammi hér á lestrarsalnum. Og þar sem þeir menn, sem kunnugastir eru, hafa álitið þetta þarft, þá get eg ekki séð neitt á móti því, að snúa sér til þingsins með þetta. Það hefir þeim mönnum, sem þessa óska, eins og eg tók fram áðan, þótt líklegasti og vænlegasti vegurinn til þess að fá því framgengt. Því þegar þingið hefir hvatt til einhvers slíks, þá álítur póstmeistari sér það heimilla en ella, og það þótt útgjöldin kynnu að fara fram yfir það, sem áætlað hefir verið. Og ef samþykki þingsins fæst, þá getur stjórnin líka frekar lagt að póstmeistaranum, að verða við þessu, en ef krafan kæmi eingöngu heiman úr héraði. Þótt þetta verði samþykt hér, þá segir hv. deild ekki annað með atkv.gr. en það, að hún vilji ekki beitast gegn sanngjarnri ósk þeirra manna, sem búa á þessum afskekta stað, og telji ekki eftir kostnaðinn, þar sem heldur ekki er um meira að ræða en hér.