11.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2069 í B-deild Alþingistíðinda. (2527)

56. mál, brúarstæði á Langadalsá

Jón Jónsson 1. þm. S.-Múl.:

Eg vil leyfa mér að spyrja hinn háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) hvort þeir, sem hér eiga hlut að máli, hafa leitað til landsstjórnarinnar um þetta mál eða hvort þeir hafa nokkuð ráðgast við landsverkfræðinginn. Mér þykir undarlegt, að þessi till. skuli koma fram hér, ef svo er ekki og verð þá að greiða atkvæði móti henni.