02.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2071 í B-deild Alþingistíðinda. (2537)

160. mál, strandferðir

Benedikt Sveinsson:

Þó langt sé síðan þetta mál kom úr nefnd, þá hefi eg þó ekki átt kost á að sjá þær breyt.till., sem síðast hafa komið fram, og svo hefir fleirum farið. Það eru því tilmæli okkar þingmanna Þingeyinga og eins deildarmanns enn að minsta kosti, að málið sé tekið út af dagskrá.