06.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2080 í B-deild Alþingistíðinda. (2548)
160. mál, strandferðir
Björn Sigfússon; Mér er þetta mál ekki kappsmál, en þó álít eg verra, að þetta mál fái þann endi, að hin rökstudda dagskrá verði samþykt, því þá veit stjórnin ekki á hvað mest áherzla er lögð. Á þingskjali 807 er safnað saman öllu því, er mest áherzla er lögð á og jafnframt er hægast að framkvæma. Þetta hefir nefndin gert með samráði við skipstjórana og einstaka þingmenn. Ef nú þingsályktunartillagan næði fram að ganga, þá sæist það, hvað hv. þing legði mesta áherzlu á og þá væri stjórnin ekki í vafa um, á hverju mest er þörf. Auðvitað voru fleiri tillögur upphaflega, sem ekki geta komið til greina, t. d. þeir viðkomustaðir, sem tefja skipin um heilan sólarhring.
Að í þessu felist móðgun til fyrverandi stjórna er fjarri öllum sanni.