19.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2109 í B-deild Alþingistíðinda. (2600)
131. mál, landhelgisgæsla
Flutnm. (Bjarni Jónsson):
Það er mikið mein, að hv. 1. þm. Eyf. (H. H.) skuli vera svo skilningssljór í sumu, sem nú sýnist í þessu. Hann talaði um handaþvott, en það þarf ekki að þvo það sem hreint er, það þarf ekki að afsaka það, þótt vér gerum rétt, en á hinn bóginn er hér tækifæri fyrir hann til þess að þvo sig með atkvæði sínu, í stað þess að lýsa því yfir, að hann ætli ekki að gera það. Þetta er ekki af fégleggvi gert, heldur af hinu, að vér getum eigi, þjóðsómans vegna, goldið fyrir slíka gæzlu, og þetta er sannarlega ekki óviðkomandi þeim, sem áður hafa haldið fram hinu gagnstæða.
Honum þótti það ómynd, að taka fjárframlög til íhugunar, og sýna kotungshugsunarhátt. Hann gat sparað sér þau orð, því að eg hafði talað um að gjalda mætti eitthvað annað en peninga, og það ef til vill meira virði en þá peninga, sem greiddir hafa verið. Þetta er því misskilningur eða vissvitandi hártogun.