25.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 522 í B-deild Alþingistíðinda. (261)
24. mál, vitar, sjómerki o. fl.
Sigurðar Stefánsson:
Af því að hv. framsögum. 3. kgk. þm. gat ekki verið viðstaddur í dag, þá hefir hann beðið mig að minnast á þetta frumvarp. Eins og nefndarálitið ber með sér, þá ræður nefndin hinni hv. deild til að samþykkja frumv. óbreytt. Hv. neðri deild hefir að eins gert á því lítilsháttar breytingar við 3. og 7. gr., sem ekki raska neitt meiningunni. Eg vona því að hv. deild geti gengið að frumv. óbreyttu.