05.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2121 í B-deild Alþingistíðinda. (2621)

146. mál, tolleftirlit

Jón Þorkelsson:

Þessi tillaga er svo til komin, að háttv. samflutnm. minn og eg höfum tekið aftur fyrri till. okkar hér að lútandi, af því að sumt af efni hennar er nú komið inn í aðra till., en þessi viðaukatill. á þgskj. 857 viljum við að bætist hér aftan við, og eftir því sem mér hefir skilist á nefndinni, mun hún vera því samþykk. Efnið er hvergi tekið fram í öðrum tillögum, en er nauðsynlegt.