07.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 527 í B-deild Alþingistíðinda. (266)
48. mál, stýrimannaskólinn
Gunnar Ólafsson:
Hv. 3. kgk. gat þess, að til sín hefði komið erindi til þingsins frá félagi gufuvélagæzlumanna, er fer fram á það, að tekin verði upp við Stýrimannaskólann kensla í gufuvélafræði. Þetta er alveg nýtt mál og óviðkomandi þessu frv. Eg skal geta þess, að þetta kom ofurlítið til tals í nefndinni, en hún vildi ekki stinga upp á, að þessari fræðigrein væri bætt við, vegna þess, að það mundi hafa talsverðan kostnað í för með sér; meðal annars mundi verða nauðsynlegt að bæta kennara við skólann. En nú mun nefndin íhuga þetta atriði nánar, og kemur þá með breyttill. við 3. umr., ef henni sýnist það gerlegt eða ástæða til þess. En annars finst mér þetta erindi gufuvélagæzlumannanna hafa farið skakka leið. Þetta mál er þannig vaxið, að erindið átti ekki að sendast til þingmanna, heldur áttu þessir menn að snúa sér til stjórnarinnar. Uppástunga um að bæta þessari fræðigrein við á skólanum verður að koma frá stjórninni. Það er hennar verk að undirbúa öll slík mál og leggja þau fyrir þingið með öllum þeim upplýsingum, sem nauðsynlegar eru og kostur er á. Nefndin getur ekki dæmt um það, hve mikinn kostnað þessi kensla mundi hafa í för með sér né heldur ákveðið fyrirkomulag hennar. Það er því vafasamt, hvort nefndin getur sint þessu máli sem stendur. En hitt er auðvitað vafalaust, að slík fræðsla í öllu því, er að gufuvélagæzlu lýtur, verður nauðsynlegri með hverju ári eftir því sem gufuskipum fjölgar hér við land. Hv. 3. kgk. tók það fram, að prófkröfur væru strangari á Stýrimannaskólanum hér, en á samskonar skólum í nágranna löndunum. Eg veit ekki hvort það er rétt hermt, en þó svo væri sé eg ekki, að það geti verið eða hafi verið til hnekkis fyrir skólann. Eftir því sem eg hefi heyrt, hafa menn lokið eins vel og jafnvel betur prófi við Stýrimannaskólann hér en annarstaðar á Norðurlöndum. Og sé svo, þá er það enginn galli, að kröfurnar séu strangar. Það er auðvitað ávinningur, að menn í þessari stétt séu sem allra bezt að sér í sinni grein. Fiskiveiðar eru annar aðalatvinnuvegur landsins, og er því lífsskilyrði að eiga vel mentaða sjómannastétt. Eg er því hlyntur öllu því, sem getur orðið til hins betra fyrir þessa stétt, og meðal annars, tel eg það sjálfsagt að veita með tímanum fé til fræðslu í gufuvélafræði við Stýrimannaskólann. Um uppástungu hv. 5. kgk. þm. skal eg geta þess, að nefndin tekur hana auðvitað til athugunar, og kemur þá með breyt.till. í þá átt við 3. umr. ef henni finst hún geta fallist á hana. Annars vil eg taka það fram út af orðum háttv. 5. kgk., að eg fæ ekki séð, að það ætti einkum að vera verk sjálfstæðismanna að nema þetta ákvæði úr lögum. Það liggur nær að skoða það skylduverk heimastjórnarmanna, úr því það voru þeir, sem settu ákvæðið inn í lögin.