19.02.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1022 í B-deild Alþingistíðinda. (2740)

Erindi frávikins gæslustjóra

Forseti:

Úrskurður er fallinn í þessu máli, og því geta engar umræður né atkvæðagreiðsla farið fram.

(Júlíus Havsteen: Hverjar ástæður hefir forseti fyrir þessum úrskurði).

Ástæðan er sú, að svona langt og slíkt erindi sem þetta á að koma fram undirbúið á skipulegan hátt sem prentað erindi, er getur legið fyrir öllum þingmönnum.