04.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 726 í B-deild Alþingistíðinda. (461)
22. mál, æðsta umboðsstjórn Íslands
Júlíus Havsteen:
Vegna þess að eg er einn af nefndarmönnunum, ætla eg að leyfa mér að segja fáein orð, í sambandi við það, sem háttv. meðnefndarmaður minn sagði. Eg vil standa við það, sem áður er komið fram í máli þessu, ásamt br.till. á þskj. 470. Þessi br.till. er í fullu samræmi við gildandi grundvallarreglur laganna frá 1903, um æðstu umboðsstjórn landsins, og þótt upphæðin breytist, þá þarf samt ekki að breyta grundvallarreglunni. Þetta sést bezt af tilsk. frá 31. maí 1885 og sömuleiðis í lögunum frá 4. marz 1904. Þessi br.till., sem eg nefndi og mun greiða atkvæði með, fellur nákvæmlega saman við lögin. Þetta getur maður aftur á móti ekki sagt um br.till. á þksj. 478.
Það hlýtur öllum að vera ljóst, að einn og sami maður getur ekki fengið tvenn eftirlaun úr sama sjóði. Það nær engri átt.
Eg verð að játa, að eg skil ekki br.till. á þskj. 507, það lítur helzt út fyrir, að meiningin með henni sé sú, að gefa ráðherra peninga.