18.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 772 í B-deild Alþingistíðinda. (517)

2. mál, hafnarlög fyrir Reykjavíkurkaupstað

Ari Jónsson:

Eg stend að eins upp til að mótmæla því, að nokkuð hafi verið rangt í skýrslu minni um skuldir okkar við Dani eins og þær voru í októbermánuði í haust. Mér þykir hart ef aðeins á að taka til greina skuldina við ríkissjóðinn og viðskiftalánið, en skilja eftir það lán, sem við skuldum dönskum bönkum, er tekið var 16. júní 1909 og á að borgast á 30 árum.