01.05.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 99 í B-deild Alþingistíðinda. (57)
87. mál, fjáraukalög 1910 og 1911
Ráðherrann (Kristján Jónsson):
Eg vildi leyfa mér að benda háttv. deild á fyrirsögn þessa frumvarps. Þar stendur: „frumvarp til fjáraukalaga fyrir árin 1910 og 1911.“ Það er svo að skilja, að þau eiga að koma til framkvæmda á þessu ári, sem þegar er liðið að þriðjungi. Nú er í þessum lögum ætlaðar eða veittar 60 þús. kr. til loftskeyta. Eg veit ekki, hvar peningarnir eru til þessa fyrirtækis, alþingi hefir ekki bent á þá, og eg veit ekki, hvar á að taka þá. Eg hefi ekki orðið var við, að neinn undirbúningur hafi verið gjörður á þessu máli. Það hafa að eins komið tvö tilboð til þingsins að koma þessum loftskeytastöðvum á stofn, en slíkt getur ekki kallast undirbúningur, þar sem tilboðin hafa eigi verið rannsökuð til neinnar hlítar. Hvað svo sem samþykt verður í þessu efni, eða hvað svo sem Neðri deild kann að gera í málinu, býst eg ekki við, að nein framkvæmd geti orðið á því í sumar að koma loftskeytastöðvunum upp, eða eg vil enga ábyrgð taka á mig í því efni. Eg vildi að eins skýra háttv. deild frá þessu nú, með tilliti til þess, að svo er litið á, að ákvæði fjáraukalaga, sem þessi eru, eiga að framkvæmast á þessu ári, ef alt fer með feldu.