28.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 827 í B-deild Alþingistíðinda. (585)

89. mál, bygging jarða og ábúð

Eiríkur Briem:

Af því að framsögumaður er ekki við, leyfi eg mér að segja nokkur orð um málið.

Það er ekki fram komin nein br.till. við frumv. og eins og menn muna, talaði nefndin um, að það yrði ekki afgreitt sem lög frá alþingi að þessu sinni, en vildi á hinn bóginn lofa því að ganga aftur til hv. neðri deildar, svo að hún gæti sagt um það álit sitt.

En svo miklar breytingar hafa verið gerðar við frumv. hér í deildinni, að telja má víst, að það verður ekki samþ. aftur óbreytt í þeirri deild, og kemur þá aftur til þessarar deildar.