18.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 855 í B-deild Alþingistíðinda. (651)

15. mál, verslunarbækur

Augúst Flygenring:

Eg vil að eins geta þess, að frumvarp þetta hefir inni að halda nokkur þarfleg ákvæði.

Þegar lög um verzlunarbækur voru samþ. á síðasta þingi, urðu fyrir vangá nokkrar misfellur á þeim, sem með þessu frumv. er meiningin að laga. Að vísu skal eg játa, að frumvarpið í þess núverandi mynd er ekki gott eða aðgengilegt, en það má breyta því og laga það, svo hér vona eg að það verði frambærilegt, og þá vil eg leyfa mér að stinga upp á því að nefnd verði skipuð í það, að lokinni umræðu.