22.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 900 í B-deild Alþingistíðinda. (774)
25. mál, vegamál
Kristinn Daníelsson:
Eg ætla að eins að leyfa mér að benda á mismuninn í kauptúnum.
Í kauptúnum eru vegirnir venjulega götur, sem fólk fer daglega, og þurfa þess vegna tíðra aðgerða við. Eg vil ennfremur leyfa mér að benda á, að í 25. gr. vegalaganna stendur, að ef miklar vegabætur þurfi í einu hreppsfélagi, þá geti sýslunefnd látið sýsluvegagjaldið renna til þess.