22.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 901 í B-deild Alþingistíðinda. (775)

25. mál, vegamál

Ráðherra (Kr. J.):

Eg fyrir mitt leyti er meðmæltur því að þessi brtill. verði samþykt. Eg hefi ekki getað séð, að nægilegt tilefni hafi verið til þess að nema úr gildi 55. gr. vegalaganna. Og eg fæ ekki skilið, hvers vegna hv. neðri deild fór fram á að svo yrði. Þess vegna verð eg að leggja til við hina hv. deild, að hún samþykki þessa brtill., því að ástæður flm. eru á fullum rökum bygðar.