27.03.1911
Efri deild: 27. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í B-deild Alþingistíðinda. (8)

4. mál, styrkveiting úr landssjóði til búnaðarfélaga

Eiríkur Briem:

Eg hefi ásamt háttv. 6. kgk. þm. leyft mér að koma fram með breytingartillögu. Eg afhenti hana á skrifstofu þingsins fyrir fund á laugardaginn var, en henni hefir ekki verið útbýtt fyr en nú, svo að hún verður eigi rædd, en það gerir ekkert til, ef málinu verður vísað til nefndar.