21.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 671 í B-deild Alþingistíðinda. (1129)

98. mál, hluttaka landssjóðs í íslensku eimskipafélagi

Framsögum. (Guðlaugur Guðmundsson):

Það er strandferðanefndin, sem flytur þetta frumvarp, og eg er hennar framsögum. Fyrst að háttv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ól.) er ekki við, vil eg taka fram, að það sem fyrir honum vakir er að opna möguleika til þess að stjórnin geti keypt strandferðabáta, ef annað um þrýtur.