01.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 809 í B-deild Alþingistíðinda. (1247)
55. mál, símalína frá Ísafirði til Patreksfjarðar
Flutn.m. (Matthías Ólafsson):
Herra forseti! Hv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ól.) hefir tekið af mér ómakið og svarað bæði hinum háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) og háttv. þm. Dal. (B. J.). Eg vil að eins bæta því við, gagnvart hinum háttv. þm. Dal., er sagðist vera ókunnugur málavöxtum, að frammi á lestrarsalnum liggja skýrslur um þetta mál, og þarf hann ekki annað en kynna sér þær.