12.08.1912
Efri deild: 22. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 120 í B-deild Alþingistíðinda. (127)

31. mál, ófriðun og eyðing sels

Forseti:

Jeg vil geta þess að það hefur orðið prentvilla á þgskj. 197 þannig, að annar liður í 5. gr. frumv. á þgskj. 130 hefur fallið burtu, og á að bætast aftan við gr. Þetta vil jeg biðja háttv. þm. að athuga; jafnframt hefur skrifstofan verið beðin að laga það.