21.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 834 í B-deild Alþingistíðinda. (1272)
85. mál, strandferðanefnd til að athuga strandferðirnar og Thore-samninginn
Matthías Ólafsson:
Viðvíkjandi brtill. minni á þgskj. 286 vil eg taka það fram, að eg sé ekki betur en sú tillaga sé ákveðnari en tillögurnar um að heimildin nái ekki „að stórum mun“ fram úr 40 þús. kr. Stjórninni er ekki gefin nein skýring á því, hvað sá „stóri munur“ megi vera hár. Með minni br. till, er stjórnin miklu nær því að vera laus við allan efa um það efni, og vona eg að hún nái fram að ganga.