19.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 849 í B-deild Alþingistíðinda. (1286)

86. mál, líftrygging sjómanna

Flutn.m. (Matthías Ólafsson):

Herra forseti! Nefndin hefir ekki séð sér fært að ráða málinu til lykta á annan hátt en með þingsályktunartill.

Þau 2 frv. sem fyrir hafa legið um þetta, ganga í gagnstæða átt hvort öðru, og nefndin telur ekki hægt að bræða þau saman.

Þarf eg svo ekki að taka meira fram viðvíkjandi tillögunni.