22.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 880 í B-deild Alþingistíðinda. (1324)
99. mál, endurgreiðsla á tillagi til símalínu (frá Selfossi til Eyrarbakka og Stokkseyrar)
Lárus H. Bjarnason:
Mér var það mikið ánægjuefni að heyra þessa tillögu til rökstuddrar dagskrár frá hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.). Eg hafði skrifað aðra hér um bil samhljóðandi.
Mér þykir það nokkuð íburðarfrekt ári áður en fjárlagaþing kemur saman að binda sig eða aðra við nýja fjárveitingu, og því minni ástæða er til þess þar sem hér á landi er þingræðisstjórn.
Sem sagt, eg mæli hið bezta með till. til rökstuddrar dagskrár og legg til að hún verði samþykt.