22.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 880 í B-deild Alþingistíðinda. (1326)
99. mál, endurgreiðsla á tillagi til símalínu (frá Selfossi til Eyrarbakka og Stokkseyrar)
Pétur Jónsson:
Eg hefi haft ástæðu til að kynna mér þetta mál, og get eg ekki séð að nein sanngirni mæli með þessari tillögu. Þegar þessi lína var ákveðin til lagningar, var presað niður tillagið frá héruðum um sem mest og var það byrjunin til þess að fleiri héruð komust að betri kjörum. Eg ætla ekki að fara hér út í neinn samanburð, en aðeins lýsa þessu yfir sem kunnugur maður.