13.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 899 í B-deild Alþingistíðinda. (1347)
72. mál, fyrirspurn um innflutning áfengis
Jón Magnússon:
Eg fer ekki út í „strictum jus“ í þessu máli, en eg vil benda á það, að ef tolllögin hafa verið brotin með þessu, þá hafa þau ekki að eins verið brotin hér í Reykjavík, heldur á mörgum höfnum á landinu stöðugt um síðustu 3040 ár. Og það má segja svo, að hér sé um samninga eða samkomulag að ræða, milli utanríkisstjórnarinnar frakknesku og íslenzku stjórnararinnar. Það hefir verið ekki einungis óátalið, heldur beint heimilað af íslenzku stjórninni að frakknesk skip sæktu aflann til frakkneskra fiskiskipa hér til lands og færðu þeim vistir um leið, einnig tollskyldar, án þess að borgaður væri tollur. Ef lögunum hefði verið beitt stranglega, þá hefði alt af átt að taka toll af þessum tollskyldu vistum og útflutningsgjald af aflanum, en það hefir ekki verið gert. Ætti nú að breyta þessari venju, þá þyrfti að tilkynna frönsku stjórninni það áður, því henni mundi þykja það undarlegt og kunna því illa, ef nú ætti formálalaust að brjóta í bága við 3040 ára gamla venju og heimta toll af vistum skipanna. Það sem hér um ræðir er ekki að öðru leyti frábrugðið því sem viðgengist hefir svo lengi, en að í stað þess að flytja vínið beint um borð í fiskiskipin, þá var það flutt í skip sem lá hér á höfninni og var ekki franskt og geymt þar lítinn tíma undir innsigli lögreglustjóra. Þetta er það eina, sem um gæti verið að tala, að kynni að mega telja vafasamt að rétt hafi verið, en þetta er svo óverulegt atriði, að ekki virðist þörf að orðlengja um.
Eg verð að segja, að mér þykir það hart að fara nú fyrst, eftir að þetta hefir viðgengist svo lengi, að fordæma fyrverandi ráðherra fyrir það, því að það er enginn vafi á því að í dagskránni er fólgin aðfinsluyfirlýsing; hún er ályktunardómur, dæmir að fyrverandi ráðherra hafi brotið lög. Og eg tel vafasamt hvort hún ætti að leyfast; eg sé ekki betur en hún fari í bága við þingsköpin, því þau leyfa ekki að ályktun sé gerð upp úr fyrirspurn. Hafi það verið venja áður, þá er sú venja ekki rétt.