13.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 900 í B-deild Alþingistíðinda. (1348)
72. mál, fyrirspurn um innflutning áfengis
Björn Kristjánsson:
Mér virðist sum atriði þessa máls vera óupplýst, atriði sem er nauðsynlegt að upplýsa, t. d. hvernig vínið var flutt hingað. Hvort það var flutt samkvæmt farmskrá og farmskírteini frá Frakklandi til ákveðins móttakanda hér á fiskiskipi frönsku. Hafi svo verið, þá virðist eiga að skoða það sem „transit“-vöru, og ætti engan toll að borga af því. En komi skip með vöru hingað sem það segist ætla að útbýta, og fylgi engin skipsskjöl frá fermingarstaðnum, er sýni að varan eigi að fara til ákveðins manns eða skips, þá á auðvitað að borga toll af henni, ef hún er tollskyld. Þannig er tolllögunum beitt í öðrum löndum. Sé vara send frá Hamborg samkvæmt skipaskjölum til annars skips t. d. í Leith, sem á að flytja hana áleiðis hingað, þá er hún skoðuð sem „transit“-vara. En sé hún send þangað til að leggjast í húlk þar á höfninni, þá yrði að sjálfsögðu tollur tekinn af henni.