19.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 984 í B-deild Alþingistíðinda. (1411)

7. mál, yfirsetukvennalög

Bjarni Jónsson; Eg skal að eins geta þess, að landlæknir talaði við mig í dag og sagði þá einmitt þetta sem eg hefi nú haft eftir honum, og vona eg að enginn rengi það. En hitt veit eg að hann verður að sætta sig við lögin eins og þau verða, því að það vita allir, að hann hefir ekki vald til að breyta lögum frá þinginu.