15.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 990 í B-deild Alþingistíðinda. (1418)

8. mál, bólusetningar

Frams.m. minni hl. (Ólafur Briem):

Eg ætla aðeins að taka það fram, að eg neita því að nokkur tillaga frá landlæknir um það, að jafna borgun eigi að taka fyrir bólusetninguna, hvort sem bólan komi út eða ekki, hafi borist nefndinni á nefndarfundi og þá ætla eg ekki að neinu leyti að taka aftur fyrri orð mín, því eg efast um það að landlæknirinn sé samþykkur þeirri breytingu á lögunum, sem háttv. frs.m. meiri hlutans (H. S.) heldur fram.