15.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 990 í B-deild Alþingistíðinda. (1419)

8. mál, bólusetningar

Jóhannes Jóhannesson:

Eg vil aðeins geta þess, að það er rétt sem hv. framsm. meiri hl. sagði áðan. Landlæknirinn kom á nefndarfund og félst hann á breytingartillögur meiri hluta nefndarinnar. Lagði hann mesta áherzlu á, að borgunin fyrir bólusetningar yrði hækkuð, hitt lá honum í léttu rúmi hvort borgunin yrði mismunandi eftir því hvort bólan kæmi út eða ekki eða hin sama.