14.08.1912
Efri deild: 24. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 133 í B-deild Alþingistíðinda. (149)

36. mál, sala á eign Garðakirkju

Jens Pálsson:

Jeg er hæstv. ráðherra mjög þakklátur fyrir hans góðu undirtektir. Jeg veit, að engir háttv. þingdeildarmenn efast um það, að þótt mót von og ósk minni yrðu stjórnarskifti, þá verði þó slík yfirlýsing sem þessi frá hæstv. ráðherra bindandi fyrir þann, sem yrði eftirmaður hans í ráðherrasessi.