23.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 1077 í B-deild Alþingistíðinda. (1523)

59. mál, þingfararkaup alþingismanna

Matthías Ólafsson:

Hr. forseti! Eg veit ekki hvort h.þm. Sm. (J.Ó.)hefir sveigt til mín með hinum síðustu orðum sínum, en hafi svo verið, hefir hann misskilið orð mín. Eg var ekki á móti frv. heldur gat eg þess, að það væri ekki sæmilegt, að þingmenn færu að skamta sér sjálfir. Það væri nær að skamta þeim næstu.