24.08.1912
Efri deild: 36. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 242 í B-deild Alþingistíðinda. (270)

104. mál, einkasöluheimild á steinolíu

Jens Pálsson:

Af umræðunum er jeg orðinn sannfærður um það, að rjett sje, að deildin sýni þess volt, að hún vilji reyna að lagfæra þetta frumv., svo eitthvað verði reynt til þess að bægja því böli frá okkur, sem nú sýnist svífa yfir höfðum vorum. Vænti jeg því þess, að málið komi til 2. umr., svo deildin geti litið á þær brtill., sem hjer hefur verið útbreitt meðal okkar.