18.07.1912
Efri deild: 3. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 249 í B-deild Alþingistíðinda. (285)
15. mál, útrýming fjárkláðans
Ráðherra Kr. J.:
Fyrir síðasta þing var lagt fram frumv. um útrýming fjárkláðans,
sem fór í líka átt og þetta frumv. Þetta frumv. var samþ. í Nd., en vísað á bug í Ed. með rökstuddri dagsskrá, þar sem skorað var á stjórnina. að leggja fyrir næsta þing frumv. til laga um skyldu til að baða sauðfje þrifabaði, að minsta kosti einu sinni á ári. Stjórnarráðið bar þessa dagsskrá efri deildar og málið í heild sinni undir dýralækninn í Reykjavík. En hann var þeirri stefnu, er fólst í nefndri dagsskrá, algerlega mótfallinn, og kvað þessi árlegu þrifaböð eigi mundu koma að tilætluðum notum, og eigi nægja til þess, að útrýma fjárkláðanum, sem töluvert hefur brytt á víðsvegar. Með því að ætla má, að hann beri gott skyn á þetta mál, fór landsstjórnin eftir tillögum hans í þessu efni. Tilefnið til þessa frumv. er, að kláði gerir vart við sig víðsvegar um land, eins og jeg drap á, og útrýming hans verður að telja hið mesta nauðsynjamál. En til þess að honum verði útrýmt, er að áliti dýralæknisins nauðsynlegt, að skipað sje fyrir um tvær baðanir með hæfilegu millibili.
Jeg vona, að hin háttv. deild geri frumv. að minsta kosti svo hátt undir höfði, að skipa nefnd í það.