18.07.1912
Efri deild: 3. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 250 í B-deild Alþingistíðinda. (286)

15. mál, útrýming fjárkláðans

Steingrímur Jónsson:

Jeg leyfi mjer að leggja til, að frumv. verði vísað til nefndar, er þessari umr. er lokið. Af því að málið er mjög mikils vert og leggur sauðfjáreigendum landsins mikinn kostnað á herðar, þarf að íhuga það vandlega. Það mun því ekki veita af, að kosin sje 5 manna nefnd, til að athuga mál þetta.