20.07.1912
Efri deild: 5. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 314 í B-deild Alþingistíðinda. (358)

20. mál, vatnsveita á Sauðárkróki

Eiríkur Briem:

Jeg vil leyfa mjer að styðja þá tillögu háttv. flutningsm., að nefnd sje skipuð í málið, því að sumpart eru ákvæði í frumvarpinu, sem eru næsta athugaverð, sumpart vantar í það ákvæði, sem nauðsynlegt er að sjeu þar, og er þetta því undarlegra, er vatnsveitulög Reykjavíkur voru höfð til hliðsjónar, og er furða, að það hefur ekki verið farið betur eftir þeim, en gert hefur verið.